SKILMÁLAR FYRIR VEFVERSLUN
Upplýsingar um fyrirtækið
Heimildarmyndir.com áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra vöru- og verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar eftir samkomulagi sem getið er um við hverja vöru eftir að greiðsla hefur borist.
Verð á vöru og sendingakostnaður
Öll verð í vefverslun eru með virðisaukaskatti. Sendingarkostnaður bætist ofan á verð vörunnar. Sendingarkostnaður er mismunandi eftir staðsetningu viðskiptavinar.
Að skipta og skila vöru
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Gölluð vara
Sé vara gölluð hefur viðskiptavingur tvo kosti: 1. Fá endurgreitt. 2. Fá senda sömu vöru, ógallaða, í staðinn. Sendingarkostnaður er innifalinn. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Trúnaður (Öryggisskilmálar)
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Privacy policy: All personal information will be confidential and not given or sold to a third party.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem Heimildarmyndir ehf. hafa lögheimili.
Governing Law / Jurisdiction: These Terms and Conditions are by Icelandic law.