Tala úr sér vitið

Tala úr sér vitið er háðsk mynd í stíl heimildarmynda um sístækkandi hóp þeirra sem reyna að hafa fé úr heilbrigðiskerfinu. Söguhetjan, Jónatan Harðarson, kennir farsímum um allt sem miður hefur farið í lífi hans. Í fyrstu virðist Jónatan hafa talsvert til síns máls, en svo taka stoðirnar undir röksemdum hans að gefa sig. Getur verið að sannleikskorn felist í sögu Jónatans? Eru farsímar raunverulega hættulegir eða er slíkt tal á misskilningi byggt?

Leikin mynd í heimildarmyndastíl um farsímaógnina.

Var sýnd í Ríkissjónvarpinu á Þorláksmessu 2004.

Frekari upplýsingar um myndinahttp://homepage.mac.com/sigurgeirorri/Menu10.html

„Skemmtileg og vel gerð mynd á allan hátt.“

   Hildur Loftsdóttir, Morgunblaðinu

Handrit og leikstjórn: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, myndataka: Guðmundur Bergkvist, framleiðendur: Sigurgeir Orri og Guðmundur Bergkvist. Leikarar: Guðmundur Ásbjörnsson, Aðalbjörg Kristín Jóhannsdóttir, Ásta Óskarsdóttir, Atli Árnason, Jónas Harðarson, Anna Soffía Reynisdóttir, Guðmundur Jóhannsson, Karl Reynir Einarsson, Sturla Johnsen, Ágústa Rut Sigurgeirsdóttir, Christophe Lecomte, Taia Nieminen, Pétur Pétursson, Ragnar Gylfi Einarsson, Ragnar Árnason, Óskar Jónasson, Sóley Kristjánsdóttir, Valur Kristjánsson, Stefán Örn Stefánsson, Tinna Kristjánsdóttir, Rúnar D. Bjarnason, Ísold Rúnarsdóttir, Bjarni Rúnarsson, Karl Valdimarsson, Sigurgeir Jónsson, Guðmundur Hallbergsson, Davíð Bergmann, Jón Þórarinn Þorvaldsson, Sigrún Eliseusdóttir og Sigurgeir Jónasson. Lengd: 30 mínútur.

„Varpar frábæru ljósi á aðferðarfræði gagnrýnna heimildarmynda.“

  Haukur Jónasson sálgreinir og prestur.

Til bakaFyrri_verk.htmlshapeimage_2_link_0